• islenska
  • English
Heim arrow Um Íshluti
Um okkur PDF Prenta Netfang

Íshlutir voru stofnaðir árið 1998, og hafa síðan þá vaxið úr 4 manna fyrirtæki sem sérhæfði sig í sölu notaðara vinnuvéla, í 30 manna fyrirtæki sem er leiðandi í innflutningi/útflutningi á vinnuvélum og þjónustu við jarðvinnuverktaka. Árið 2006 flutti fyrirtækið í nýjar höfuðstöðvar sínar í 1.500 m2 húsnæði í Mosfellsbæ, þar sem 1.300 m2 eru notaðir undir starfssemi þjónustudeildarinnar. Í þjónustudeild fyrirtækisins eru 24 starfsmenn, þar af 14 viðgerðarmenn. Fyrirtækið hefur yfir að ráða 4 fullbúnum viðgerðarbílum sem eru stöðugt á ferðinni um landið auk þess sem að Íshlutir reka sérútbúin smurbíl sem þjónustar verktaka um allt land.

Við leggjum höfuðáherslu að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi góða og skjóta þjónustu.